Leita ferðamanns í Hoffellsdal

Björgunarfélag Hornafjarðar leitar nú ferðamanns sem er villtur í eða við Hoffellsdal. Maðurinn, sem er erlendur, var á göngu með konu sinni þegar hún treysti sér ekki lengra og ákvað að snúa við og ganga til baka að bíl þeirra. Hann hélt áfram göngunni en um klukkan 16.30 sendi hann konu sinni sms þar sem hann sagðist vera villtur. 

 Konan hringdi þá eftir aðstoð og var björgunarsveitin kölluð út rétt eftir klukkan 19.00. Um hálftíma síðar voru fyrstu björgunarsveitamenn búnir að staðsetja bílinn og konuna. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að ekki hafi náðst samband við manninn aftur og eru björgunarsveitarmenn nú að kanna þekkta slóða og gönguleiðir á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert