Ferðamaður tekinn á 159 km hraða

mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði fyrr í kvöld erlendan ferðamann fyrir of hraðan akstur. Maðurinn, sem var á vesturleið austan við Hvolsvöll, ók á 159 kílómetra hraða.

Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli gat maðurinn enga skýringu gefið aðra en þá að hann var að reyna að ná í búðina áður en lokaði.

Mikið rok og rigning var á svæðinu og að sögn lögreglu þykir mikið mildi að ekki hafi komið til slyss. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert