Þurfa að fjarlægja farm úr skipinu

Green Freezer og Þór við bryggju á Fáskrúðsfirði í morgun.
Green Freezer og Þór við bryggju á Fáskrúðsfirði í morgun. Mbl.is/Albert Kemp

Green Freezer liggur enn við bryggju á Fáskrúðsfirði en varðskipið Þór dró skipið af strandstað í gær. Þegar skipið strandaði sl. miðvikudagskvöld var skipið á leið til Loðnuvinnslunnar hf. í firðinum.

Að sögn lögreglu þarf að ná farmi úr skipinu og kanna skemmdir á því. Ekki liggur fyrir hversu lengi skipið verður við bryggjuna. Áhöfnin heldur til í skipinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert