Unnu eitt silfur og sex brons

Íslenski hópurinn sem keppti á mótinu.
Íslenski hópurinn sem keppti á mótinu. Ljósmynd/Karatesamband Íslands

Fyrsta smáþjóðamótið í karate var haldið í Lúxemborg í gær. Sjö þjóðir sendu keppendur til leiks og voru þeir um 240 talsins. Ísland vann til einna silfurverðlauna og sex bronsverðlauna á mótinu. Bestum árangri íslenskra keppenda náði Telma Rut Frímannsdóttir er hún vann til silfurverðlauna í opnum flokki í kumite kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Karatesambandi Íslands. 

Í fyrstu umferð mætti Telma Sonju Steland frá Lúxemborg sem hún vann 3-1, í annarri umferð mætti hún annarri stúlku frá Lúxemborg, Polu Giorgetti, og vann Telma nokkuð öruggt 4-0.  Í úrslitum mætti Telma Söndru Herver frá Andorra, sem eftir mjög harða og spennandi bardaga endaði sem sigurvegari með fimm stig á móti þremur stigum Telmu.

Telma hafði leitt bardagann um tíma í stöðunni 3-2, en Sandra náði stigum á Telmu í lok viðureignar. Þessi árangur Telmu gefur góðar vonir fyrir næsta verkefni hennar sem verður Heimsmeistaramótið í Þýskalandi í byrjun nóvember. 

Að öðrum úrslitum í fullorðinsflokkum má helst nefna að í kata fullorðinna vann Svana Katla Þorsteinsdóttir til bronsverðlauna eftir að hafa unnið Vanessu Fabbri frá San Marínó í bardaganum um þriðja sætið. 

Jóhannes Gauti Óttarsson keppti í kumite -75kg þar sem hann mætti Michalis Machallekides frá Kýpur í fyrstu umferð, sú viðureign lauk með sigri Michalis 3-0 en hann vann svo flokkinn.  Jóhannes fékk því uppreisn og tækifæri til að berjast um þriðja sætið en andstæðingur hans mætti ekki svo bronsið var Jóhannesar.

Elías Snorrason og Bogi Benediktsson kepptu í kata fullorðinna en töpuðu báðir í fyrstu umferð, Elías fékk svo uppreisnarviðureign um réttinn til að keppa um þriðja sætið en tapaði þar á móti Arnold Chep frá Mónakó.

Verðlaunahafar
Silfur í kumite opinn flokkur       Telma Rut Frímannsdóttir
Brons í kata kvenna                   Svana Katla Þorsteinsdóttir
Brons í kumite -75kg                  Jóhannes Gauti Óttarsson
Brons í kumite unglinga -54kg    Edda Kristín Óttarsdóttir
Brons í kumite unglinga +54kg   Katrín Ingunn Björnsdóttir
Brons í kumite unglinga +54kg   Laufey Lind Sigþórsdóttir
Brons í sveitakeppni unglinga    Edda Kristín, Katrín Ingunn, Laufey Lind

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert