Afþreyingarhópurinn ekki Activity Group

Neytendastofa.
Neytendastofa.

Neytendastofa hefur bannað Afþreyingarhópnum ehf. notkun á heitinu Activity Group. Taldi Neytendastofa notkun Afþreyingarhópsins á auðkenninu Activity Group geta skapað rugling fyrir neytendur.

Neytendastofu barst kvörtun frá Skálpa ehf. yfir skráningu og notkun Afþreyingarhópsins ehf. á auðkenninu Activity Group. Fyrirtækin eru keppinautar á sviði ferðaþjónustu. 
Að mati Neytendastofu er heitið Activity Group sérkennandi og ekki lýsandi fyrir þá þjónustu sem fyrirtækin veita þar sem afþreying geti verið margskonar og ekki einungis bundin við ferðaþjónustu.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert