Eldur kviknaði í Brekkubæjarskóla á Akranesi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni skólans er búið er að slökkva eldinn og vinnur slökkvilið nú að reykræstingu.
Starfsmenn skólans vinna nú að því að hringja í foreldra yngstu nemendanna og biðja þá um að sækja börnin.
Ekki er vitað um eldsupptök.