Eldheitar hárgreiðslur

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn verða snyrtilegir um hárið á vaktinni.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn verða snyrtilegir um hárið á vaktinni. mynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fengu óvænta heimsókn í dag þegar nemar í Hársnyrtiskólanum komu á stöðina og buðust til að klippa á þeim hárið án endurgjalds.

Fram kemur í tilkynningu frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, að þetta hafi verið hluti af verkefni sem kallast Gulleggið. Í því felst að gefa vinnuna sína til að láta gott af sér leiða.

Með þessu vildu nemarnir endurgjalda starfsmönnum SHS þeirra vinnuframlag í þágu almennings og hlutu miklar þakkir fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert