„Jafnréttismál eru mál allra“

Emma Watson og Ban Ki-moon á samkomu UN Women á …
Emma Watson og Ban Ki-moon á samkomu UN Women á sunnudag. AFP

„Þetta var afskaplega áhrifamikil ræða og hún virkilega hreif allan salinn með sér“ segir Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, en hann var viðstaddur þegar leikkonan Emma Watson hélt ræðu á sam­komu sem hald­in var í höfuðstöðvum Sam­einuðu þjóðanna í New York á sunnudag. Watson talaði meðal ann­ars um það hvers vegna hún er stolt­ur fem­ín­isti, sem hún sagði þó hugtak sem fjöldi fólks væri með fordóma fyrir. Þá sagði hún að oft á tíðum upplifi karlmenn ekki jafnrétti, frekar en konur.

Einar, ásamt fleirum, mætti á samkomuna fyrir hönd Íslands. Hann sagði allan viðburðinn hafa verið mjög áhugaverðan, en auk Watson héldu leikarinn Keifer Sutherland og Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, áhrifamiklar ræður.

Átak sem passar vel við málflutning Íslands

Wat­son hélt ræðuna í til­efni þess að ný her­ferð sem kall­ast HeForS­he er nú haf­in. Her­ferðin snýst um að virkja karl­menn í mót­mæl­um gegn kynjam­is­rétti. „Þetta er átak sem passar mjög vel við málflutning Íslands, sem hefur einmitt beitt sér fyrir því að fá fókusinn á það að jafnréttismál séu mál allra en ekki einhvers konar kvennamál,“ segir Einar.

Hann segir átakið ganga út á það að fá karlmenn til að skrifa undir yfirlýsingu, eða heitstrengingu um að þeir ætli að láta sig þessi mál varða. „Markmiðið er að fá 100 þúsund undirskriftir til að byrja með, en það er áfangamarkmið vegna þess að stóra markmiðið er það að ná langt um fleiri, eða milljarði manna,“ segir Einar, og vekur athygli á heimasíðu átaksins HeForShe.org, þar sem karlmenn geta skrifað undir yfirlýsinguna. „Markmiðið er að karlmenn skuldbindi sig með þessum hætti svo það sé ekki bara helmingur jarðarbúa sem geri það, heldur allir.“

UN Women stendur að baki átakinu, en sérstök áhersla hefur verið lögð á samstarf við UN Women á Íslandi síðustu ár. Að sögn Einars er Ísland í hópi þeirra ríkja sem leggja hvað mest til starfseminnar ef miðað er við höfðatölu. Þá situr Ísland í stjórn UN Women þetta árið.

Fór með ræðuna blaðlaust

Í ræðu sinni kvaðst Wat­son hafa gerst fem­in­isti meðal ann­ars vegna þess að þegar hún var 14 ára var hún gerð að kyn­tákni í fjöl­miðlum og þegar hún var 15 ára hættu flest­ar vin­kon­ur henn­ar í íþrótt­um vegna þess að þær vildu ekki vera vöðvastælt­ar. „Það var þá sem að ég vissi að ég væri fem­in­isti,“ sagði Wat­son sem var kölluð ráðrík fyr­ir að vilja leik­stýra skóla­leik­riti þegar hún var átta ára. Athygli vekur að Watson virtist fara með ræðuna blaðlaust, og segir Einar enga skjái hafa sést sem hún hefði getað lesið af.

Hér fyrir neðan má sjá ræðuna í heild.

Frétt mbl.is: Ræða Emmu Watson vekur athygli

Einar Gunnarsson
Einar Gunnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert