Glæfraakstur með tilheyrandi óhljóðum

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Ungur ökumaður var staðinn að glæfraakstri eftir miðnætti í nótt þegar hann ók um Tryggvatorg á Selfossi með tilheyrandi óhljóðum og slætti þannig að bifreiðin snérist í hálfan hring á veginum og var ekið gengt akstursstefnu. 

Í dagbók lögreglunnar á Selfossi segir að við skoðun á hjólbörðum bílsins kom í ljós að þeir voru óhæfir til notkunar og þess vegna var unga manninum gert að mæta með bifreiðina í skoðun auk þess sem hann þarf að greiða sekt fyrir að vera með bifreiðina vanbúna og þrjú önnur brot. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert