Leitar að þeim sem strengdi vírinn

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir upplýsingum um atvik sem varð á föstudag, en þá slasaðist maður hjólaði á vír sem hafði verið strengdur þvert yfir brúna sem liggur yfir Elliðarárósa.

Vírinn var kirfilega bundinn og var ekki annað að sjá en að einhver hefði strengt vírinn beinlínis til að valda slysi. Maðurinn hlaut töluverða áverka, m.a. á öxl og þá þurfti að sauma 10 spor í enni hans. 

Lögreglan biður þá sem hafa upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglustöðina við Vínlandsleið í síma 444-1180.

Vír strengdur yfir hjólabrú

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert