Sektunum velt út í verðlagið

Mjólkursamsalan.
Mjólkursamsalan. Eggert Jóhannesson

Neytendasamtökin skora á samkeppnisyfirvöld að beita refsiákvæðum samkeppnislaga gagnvart einstaklingum í auknum mæli frekar en að fella háar sektir á brotleg fyrirtæki. Skaði vegna slíkra sekta endi ekki hjá þeim sem skömmina eiga heldur hjá neytendum enda geti fyrirtækið velt sektunum út í verðlagið.

Áskorunin kemur til vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um misnotkun Mjólkursamsölunnar á markaðsráðandi stöðu sinni. „Með þessari einföldu áherslubreytingu yrði fælingarmáttur samkeppnislaga miklu meiri. Með því að beita háum sektum á fyrirtæki sem brjóta samkeppnislög og eru í einokunaraðstöðu er aðeins verið að velta sektunum beint út í verðlagið. Skaði vegna slíkra sekta endar því ekki hjá þeim sem skömmina eiga, heldur hjá neytendum.“

Þá fordæma Neytendasamtökin þá stefnu stjórnvalda að koma í veg fyrir samkeppni á búvörumarkaði. „Stjórnvöld ættu frekar að stuðla að heilbrigðri samkeppni en að hindra eðlilega virkni markaðarins. Það hefur sýnt sig með óteljandi dæmum að eitt helsta hagsmunamál neytenda er heilbrigð samkeppni og gangi hún í berhögg við pólitísk markmið eiga hagsmunir almennings að ráða - ekki hagsmunir framleiðenda. Þess vegna krefjast Neytendasamtökin að Alþingi afnemi allar undanþágur sem mjólkuriðnaðurinn býr við gagnvart samkeppnislögum.“

Neytendasamtökin segja að með tilliti til alvarleika málsins megi ætla að neytendur reyni að sniðganga framleiðsluvörur MS að því marki sem þeir geta. „En markaðsráðandi staða fyrirtækisins gerir neytendum það erfitt fyrir sem staðfestir mikilvægi þess að breyta lögum um mjólkuriðnaðinn.“

Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar.
Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar. Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert