Tafir á umferð á Vesturlandsvegi

Sigurður Bogi Sævarsson

Talsverðar tafir hafa orðið á umferð milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur nú á níunda tímanum vegna áreksturs. Engin slys urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar.

Lögregla er á staðnum og er umferð að komast í eðlilegt horf á ný en helsta skýringin á því hversu miklar tafir urðu á umferð er sú að strætó lenti í árekstrinum og var erfitt fyrir aðrar bifreiðir að komast framhjá honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert