Ungmenni í öllum nefndum hjá Seltjarnarnesbæ

Ungmennaráð Seltjarnarnesbæjar.
Ungmennaráð Seltjarnarnesbæjar.

Á sínum tíma fór Ungmennaráðið Seltjarnarnesbæjar fram á það við bæjarstjóra Seltjarnarness, Ásgerði Halldórsdóttur, að fulltrúar þess fengju að taka virkari þátt í nefndarstarfi bæjarins. Vel var brugðist við þeirri málaleitan og í fyrra var stigið fyrsta skrefið í þá veru með samþykki allra kjörinna fulltrúa bæjarins. Ungmennaráð Seltjarnarnesbæjar hefur nú nýlega skipað fulltrúa í allar stærstu nefndir bæjarins þar sem það hefur málfrelsi og tillögurétt. Þetta eru þau Anna Lilja Björnsdóttir og Victor Levi Ferrua Teitsson í íþrótta- og tómstundanefnd, Lillý Óladóttir og Tómas Helgi Kristjánsson í menningarnefnd, Kristján Hilmir Baldursson og Ísak Arnar Kolbeinsson í skipulags- og mannvirkjanefnd, Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir og Benedikt Bjarnason í skólanefnd og Victor Levi Ferrua Teitsson og Geir Zoëga í umhverfisnefnd.

Í fréttatilkynningu er haft eftir Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra að mikil sé ánægja meðal bæjarstjórnarmanna með setu unga fólksins á Nesinu í nefndunum og afar mikilvægt að sjónarmið þeirra komist milliliðalaust til skila. Það styður einnig við áherslu bæjarins um lýðræðislega þátttöku bæjarbúa um málefni bæjarins. Á fundunum fá fulltrúar Ungmennaráðsins tækifæri til að ræða og meta stöðu sína í eigin samfélagi og grundvöll til að eiga samtal við aðra nefndarmenn sem starfa í stjórnsýslunni. Ungmennaráð Seltjarnarness er afar öflugur félagsskapur sem leggur áherslu á samveru og fagnaðarfundi með eldri borgurum auk þess að starfa ötullega að jafningjafræðslu.

Þá kemur fram í tilkynningunni að Seltjarnarnesbær sé eitt fárra bæjarfélaga á landinu sem hefur stigið þetta skref í því skyni að efla þátttöku og virkni ungmenna bæjarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert