Ákærð fyrir árás á lögreglukonu

Bankastræti
Bankastræti Sigurður Bogi Sævarsson

Ríkissaksóknari hefur ákært 59 ára konu fyrir valdstjórnarbrot. Henni er gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 15. september 2013, fyrir utan skemmtistaðinn B5, sparkað í vinstri fót lögreglukonu, sem var við skyldustörf, og reynt að slá hana í andlitið.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert