Fjárhagsstaða einstæðra batnar mjög

Um 23% heimila í landinu skuldar meira en 150% af …
Um 23% heimila í landinu skuldar meira en 150% af eigin fé Ómar Óskarsson

Eiginfjárstaða allra fjölskyldugerða batnaði á árinu 2013. Þetta á einkum við um einstæða foreldra en staða eiginfjár hjá þeim jókst um tæp 36% árið 2013. Eiginfjárstaða einstaklinga jókst um 8,8%, hjóna án barna um 6,2% og hjóna með börn um 5,9%, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Eiginfjárstaða milli ára hækkar mest í aldurshópunum 25-39 ára eða á bilinu 23%-49% sem einkum má rekja til bættrar eiginfjárstöðu í fasteign.

Tæplega 16 þúsund fjölskyldur með neikvætt eigið fé

Fjölskyldum með neikvætt eigið fé í húsnæði fækkar líkt og gerst hefur síðustu ár. Árið 2013 voru 15.971 fjölskylda með neikvæða eiginfjárstöðu í fasteign eða rúmlega 10% færri en árið 2012 og að meðaltali nam neikvæð eiginfjárstaða í fasteign 4,6 m.kr.

23% skulda meira en 150% af eignum sínum 

Frá árinu 2005 hefur hlutfallslega þeim sem skulda meira en 150% af eignum fjölgað úr 10,1% fjölskyldna í tæp 23% og fjölskyldum sem skulda minna en 75% í eign fækkað úr tveimur þriðju í rúman helming.

Eignir einstaklinga  jukust um 3,8% milli ára eða úr 3.969 milljörðum kr. í 4.121 milljarð kr. Verðmæti í fasteignum hækkaði um 5,1% frá árinu 2012 sem rekja má að hluta til hækkunar fasteignamats um 7,7%.

Skuldir einstaklinga námu 1.927 milljörðum kr. í árslok 2013 og jukust um 0,3% frá fyrra ári. Skuldir hjóna með börn drógust saman um 1,8% og einstæðra foreldra um 1,0% en jukust hins vegar hjá hjónum án barna um 3,4% og einstaklingum um 1,1%.

Íbúðalán námu 1.242 milljörðum kr. og jukust um 1,5% milli ára. Aukning íbúðalána var einkum í eldri aldurshópum, um 7,9% hjá 60-66 ára og 10,7% hjá 67 ára og eldri.  Íbúðalán 50-59 ára jukust um 3,3%-3,6% frá fyrra ári. Íbúðalánum þeirra sem voru yngri en 29 ára fækkaði um 7% og um 3% í aldurshópnum 30-39 ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert