Flugmenn að samningaborðinu

Kjarasamningar sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna og fulltrúar Icelandair group skrifuðu undir í vor renna út í dag. Að sögn formanns félags íslenskra atvinnuflugmanna er samningaferli nú hafið.

„Við erum í samningaviðræðum, næsti fundur er á morgun,“ segir Hafsteinn Pálsson, formaður félags íslenskra atvinnuflugmanna, í samtali við mbl.is.

Í maí neyddist Icelandair til að aflýsa tugum ferða í maí vegna verkfallsaðgerða flugmanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert