„Fyrst var rúða skemmd hjá okkur á föstudaginn. Svo voru tvær rúður skemmdar hjá okkur á laugardag.
Þetta eru sérstaklega hertar rúður sem ekki er hægt að brjóta en þú getur skemmt þær,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir hún það gerast reglulega að skemmdarverk eru unnin á húseigninni þar sem Fjölskylduhjálpin er starfrækt í Iðufelli í Breiðholti.