Tveir ökumenn í vímu

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för tveggja ökumanna í nótt vegna þess að þeir óku undir áhrifum vímuefna.

Um hálfþrjú í nótt var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna en hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Hann reyndist einnig sviptur ökuréttindum.

Annar ökumaður var stöðvaður um tvöleytið í nótt vegna gruns um ölvun við akstur, hann var síðan látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert