Krapi er á Hálfdán

Hrafnseyrarheiði.
Hrafnseyrarheiði. mynd/bb.is

Krapi er á Hálfdán og hálkublettir á Hrafnseyrarheiði en annars eru allar aðalleiðir á landinu greiðfærar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni

Göngu- og hjólastígur meðfram Álftanesvegi verður endurbyggður á um 1 km kafla til suðurs frá hringtorgi við Bessastaðaveg. Gerður verður göngustígur  til bráðabirgða milli Fógetatorgs og Garðavegar en hjólandi umferð þarf að nota akbrautina á þessum kafla meðan á framkvæmd stendur. Reiknað er með að verkinu ljúki 18. október.

Unnið er við að koma fyrir stálræsi/undirgöngum undir Hringveg á Hellisheiði á móts við gatnamótum inn á Gígahnúksveg. Umferðarhraði hefur verið tekinn niður í 50 km/klst í gegnum þetta svæði og er umferð hleypt um hjáleið. Áætlað er að þessu verki ljúki 4. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert