Reyndu að manna hring um Tjörnina

Treflar voru meðal annars notaðir í tilraun kennara, nemenda og annarra velunnara Kvennaskólans til að mynda hring utan um Tjörnina í Reykjavík í dag. Ekki tókst þó að manna hringinn enda veðrið frekar leiðinlegt. Allir virtust þó skemmta sér vel við tilraunina.

Uppátækið tengist 140 ára afmæli skólans. Þrátt fyrir góðan vilja náði þó hringurinn ekki nema um hálfa Tjörnina.

Að þessu loknu fengu allir afmælisköku og mjólk í mötuneyti skólans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert