Runólfur kjörinn framtíðarforseti Evrópusamtaka lyflækna

Runólfur Pálsson.
Runólfur Pálsson.

Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala og prófessor í lyflæknisfræði (nýrnalæknisfræði) við læknadeild Háskóla Íslands, hefur verið kjörinn framtíðarforseti Evrópusamtaka lyflækninga (President-Elect). 

Það þýðir að hann mun sitja í framkvæmdastjórn samtakanna næstu tvö árin sem framtíðarforseti og taka síðan við sem forseti. Kjörið fór fram á fundi Evrópusamtakanna í Tartu í Eistlandi 27. september 2014, segir í fréttatilkynningu.

Evrópusamtök lyflækna (European Federation of Internal Medicine, EFIM) eru fagsamtök, í raun samband félaga lyflækna í Evrópulöndum. Þau halda árlegt vísindaþing, standa fyrir skóla fyrir unga og verðandi lyflækna og gefa út tvö tímarit, þ. á m. European Journal of Internal Medicine. Skrifstofa samtakanna er í Brussel.  Félag íslenskra lyflækna er aðili að samtökunum en Runólfur hefur verið formaður þess frá 2001.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert