Útaf á sama stað og mjólkurbíllinn

Ljósmynd/ Davíð Pétursson

Engann sakaði þegar kranabíll fór útaf veginum við Borgarfjarðarbraut í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi fór bíllinn útaf á svipuðum stað og mjólkurbíllinn sem valt í sumar en þá helltust niður þúsundir lítra af mjólk.

Kranabíllinn mun ekki hafa verið á mikilli ferð en vegkantur hrundi undan honum í beygju. Gert var við vegkantinn eftir að mjólkurbíllin valt en lögregla segir mikla vætutíð eflaust hafa ollið því að hann þoldi ekki mikil þyngsli.

Kranabíllinn er í eigu Vegagerðarinnar og verður sóttur á morgun.

Þúsundir lítra af mjólk helltust niður

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert