Allar deildir undirbúnar

Félagar í Læknafélagi Íslands og Skurðlæknafélagi Íslands kjósa um hvort …
Félagar í Læknafélagi Íslands og Skurðlæknafélagi Íslands kjósa um hvort þeir fari í verkfall. mbl.is/Golli

Byrjað er að undirbúa yfirvofandi verkfall lækna á Landspítalanum.

Meðal annars hefur verið boðað til fundar á skurðlækningasviði í næstu viku með yfirlæknum og fulltrúum mannauðsdeildar og lögfræðingum, þar sem farið verður yfir undanþágulistann og skýrt vel út hvaða reglur gilda í verkföllum.

Spítalinn verður þó rekinn á eðlilegan hátt fram á síðustu stundu. „Við munum halda áfram að kalla fólk inn til aðgerða en ef ekki semst fyrir boðaðan verkfallsdag verður fólki gerð grein fyrir því,“ segir Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs spítalans, í umfjöllun í Morghunblaðinu í dag um stöðu mála í heilbrigðiskerfinu vegna hugsanlegs verkfalls lækna á Landspítalanuim.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert