Fundu peninga og fóru með til lögreglu

Saknar þú peninga?
Saknar þú peninga? AFP

Í gær kom fundvíst fólk í heimsókn lögreglustöðina í Hafnarfirði í gærkvöldi með reiðufé í erlendri mynt sem þau fundu í Reykjavík fyrr um daginn. Um er að ræða þónokkra upphæð og auglýsir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu því eftir eiganda peninganna.

Ef þú hefur glatað þessum peningum eða veist hver hefur glatað þeim þá endilega sendu lögreglunni einkaskilaboð gegnum Facebook eða tölvupóst gegnum netfangið abending@lrh.is.

Að sjálfsögðu verður krafist að eigandi sanni eignarhald sitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert