Hætta samstarfi við Akureyrarbæ

mbl.is/Kristinn

Barnaverndarstofa hefur ákveðið að hætta samstarfi við Akureyrarbæ um meðferð fyrir unglinga og fjölskyldur þeirra sem staðið hefur frá árinu 2009, svokallaða PMTO-meðferð. Þetta kemur fram í Vikudegi í dag.

Í verkefninu var lögð áhersla á stuðning við fjölskyldur unglinga með hegðunarerfiðleika á Akureyri og nágrenni. 

Barnaverndarstofa veitir nú enga sambærilega þjónustu á Eyjafjarðarsvæðinu eða annarsstaðar utan suðvesturhornsins. Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og forstöðumaður barnaverndar á Akureyri, segir málið grafalvarlegt.

Nánar er fjallað um þetta mál og rætt við Áskel Örn í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert