Reyndi að stinga lögreglu af

Lögreglustöðin Akureyri
Lögreglustöðin Akureyri mbl.is/Gúna

Lögreglan á Akureyri reyndi að stöðva akstur bifreiðar upp úr miðnætti í bænum í nótt með því að gefa ökumanninum merki um að stöðva. Hann sinnti því ekki og gaf allt í botn.

Lögreglan elti bifreiðina nokkra stund um bæinn með blikkandi sírenur án árangurs þar til ökumaðurinn snarhemlaði og stökk út úr bifreiðinni og reyndi að stinga lögregluna af á hlaupum.

En lögreglumennirnir hlupu hraðar og handtóku en í ljós kom að hann var undir áhrifum fíkniefna við aksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert