Þrjú kynferðisbrot til ríkissaksóknara

Lögregla hefur lokið rannsókn málanna og eru þau nú komin …
Lögregla hefur lokið rannsókn málanna og eru þau nú komin á borð ríkissaksóknara. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Rannsókn tveggja kynferðisbrotamála, sem voru til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi eftir verslunarmannahelgina, er nú lokið og eru bæði málin komin til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort lagðar verði fram ákærur í málunum tveimur.

Hið sama er að segja um kynferðisbrotamál sem rannsakað var af lögreglunni á Akureyri.

Brotin þrjú voru framin á Flúðum, á Selfossi og á Akureyri um verslunarmannahelgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert