Þórey stefnir blaðamönnum DV

Þórey Vilhjálmsdóttir.
Þórey Vilhjálmsdóttir. Jim Smart

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, hefur falið lögmanni sínum að stefna tveimur blaðamönnum DV. Blaðamönnunum er stefnt vegna „ærumeiðandi ummæla og grófra aðdróttana“, segir í yfirlýsingu sem Þórey hefur sent fjölmiðlum.

Yfirlýsing Þóreyjar í heild:

Að vel ígrunduðu máli og eftir talsverðan umhugsunartíma hef ég í dag falið lögmanni mínum að birta blaðamönnum DV, þeim Jóni Bjarka Magnússyni og Jóhanni Páli Jóhannssyni, stefnu vegna ærumeiðandi ummæla og grófra aðdróttana í minn garð.    

 Ástæðan er umfjöllun í DV þann 20. júní sl. þar sem því var ranglega haldið fram og slegið upp að ég hafi „lekið” trúnaðarupplýsingum um hælisleitendur til fjölmiðla og jafnframt að ég væri „starfsmaður B” skv. úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í hinu svokallaða lekamáli. Einnig er því ranglega haldið fram að ég hafi átt í samskiptum við ákveðna fjölmiðla og að ég hafi leitað að áðurnefndum trúnaðarupplýsingum í tölvu minni. Allt eru þetta grófar og tilhæfulausar aðdróttanir sem fela í sér að ég hafi gerst sek um refsivert athæfi og alvarlegt brot í starfi.

Mín upplifun er sú að lengi hafi verið unnið að því af hálfu blaðamanna DV að draga upp þá mynd og síðar fullyrða með beinum hætti að ég væri sek um trúnaðarbrest og leka til fjölmiðla. Ýjað var að því í nokkra mánuði að ég hafi lekið trúnaðargögnum þar til að blaðamennirnir bitu höfuðið af skömminni með því að birta umræddar ásakanir sem sannaðar staðhæfingar í blaðinu þann 20. júní sl. Með þessu hafa þeir vegið alvarlega að mannorði mínu og æru og valdið mér og fjölskyldu minni ómældu hugarangri.

Stór hluti af starfi mínu sem aðstoðarmaður felst í samskiptum við fjölmiðla sem í langflestum tilvikum hafa verið góð og málefnaleg nema í þessu tilfelli. Það er von mín að málshöfðun þessi hafi einnig þau áhrif að bæta vinnubrögð fjölmiðilsins og umræddra starfsmanna í framtíðinni.

Lögfræðikostnað minn greiði ég úr eigin vasa en þær miskabætur sem ég fer fram á mun ég gefa til góðgerðarmála.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert