Mikil mengun er yfir Skagafirðinum, eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Aðalsteinn Hjelm sendi mbl.is. Mengunin er að öllum líkindum gosmengun frá eldgosinu í Holuhrauni.
Aðalsteinn lýsti aðstæðum í Skagafirðinum þannig að skýið hefði helst minnt á mengunarský eins og yfir stórborgum erlendis þegar vind hreyfir ekki.