Framlagið er um 26 milljarðar

Útvarpshúsið við Efstaleiti er helsta eign Ríkisútvarpsins. Sala á því …
Útvarpshúsið við Efstaleiti er helsta eign Ríkisútvarpsins. Sala á því myndi bæta skuldastöðu RÚV en ekki reksturinn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Samanlagt framlag ríkisins til Ríkisútvarpsins ohf. frá árinu 2007 nemur 25,8 milljörðum króna. Um er að ræða nefskatt sem lagður er á landsmenn, svonefndar þjónustutekjur.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Óla Björns Kárasonar, varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins, um Ríkisútvarpið í Morgunblaðinu í dag.

„Frá stofnun hefur Ríkisútvarpið ohf. tapað um 1.632 milljónum króna á föstu verðlagi. Samanlagðar heildartekjur hafa hins vegar numið um 40.683 milljónum króna,“ skrifar Óli Björn um reksturinn hjá RÚV.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert