Biðlistar lengjast í verkfallinu

Læknar fara í verkfall í lok október, verði ekki samið …
Læknar fara í verkfall í lok október, verði ekki samið fyrir þann tíma í kjaradeilu þeirra. mbl.is/Golli

Stjórn hjúkrunarráðs Landspítala lýsir yfir miklum áhyggjum vegna yfirvofandi verkfalls lækna. Læknar eru mikilvægur hluti heilbrigðisþjónustu og mun verkfall þeirra skerða starfsemi hennar verulega, segir í m.a. í ályktuninni.

Þá er bent á að biðlistar eftir þjónustu munu lengjast og aukið álag verður á aðra heilbrigðisstarfsmenn sem  getur haft áhrif á öryggi sjúklinga.

„Ítrekað hefur verið bent á mikið álag í heilbrigðiskerfinu og skort á læknum og hjúkrunarfræðingum. Bæta þarf kjör og starfsaðstæður þeirra svo heilbrigðiskerfið á Íslandi verði samkeppnishæft við önnur lönd.

Mikilvægt er að horfa til framtíðar og tryggja að hér verði til staðar heilbrigðisstarfsfólk með færni, reynslu og þekkingu svo hægt sé að veita góða heilbrigðisþjónustu.

Stjórn hjúkrunarráðs  hvetur stjórnvöld til að koma til móts við lækna í þessari deilu og leysa úr henni sem allra fyrst,“ segir í ályktun stjórnar hjúkrunarráðsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert