Borgarráð gagnrýnir flutning Fiskistofu

mbl.is/Styrmir Kári

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins þar sem hvatt er til vandaðrar stjórnsýslu af hálfu ríkisvaldsins og þá ekki síst þegar fjallað sé um mál sem varða hagsmuni stórra hópa starfsfólks opinberra stofnana og Fiskistofa sérstaklega nefnd í því sambandi.

Fram kemur að ákvörðun um flutning Fiskistofu sé dæmi um óundirbúinn og óvandaðan flutning stofnunar. Er Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hvattur til þess að falla frá þeirri ákvörðun. Tillagan var samþykkt með atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og Pírata. Fulltrúi Framsóknarflokksins greiddi hins vegar atkvæði gegn tillögunni og lagði fram bókun að því tilefni. Tillaga sjálfstæðismanna er svohljóðandi:

„Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:
Borgarráð hvetur til vandaðrar stjórnsýslu af hálfu ríkisins, ekki síst þegar fjallað er um mál sem varða stóra hópa starfsfólks opinberra stofnana á borð við Fiskistofu. Ákvörðun um flutning Fiskistofu er dæmi um óundirbúinn og óvandaðan flutning stofnunar. Enda virðist niðurstaðan verða sú að fæst ef nokkuð af starfsfólkinu flytur með og ríkissjóður verður fyrir óþarfa kostnaði. Ráðherra er hvattur til þess að endurskoða ferli þessa máls og falla frá þessum áformum. Með sama hætti er erfitt að sjá hvernig ný stofnun sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur tilkynnt um á erindi út á land. Þörfin fyrir starfsemi stofnunar sem hefur með barnavernd, réttindagæslu fatlaðs fólks o.fl. er mest á höfuðborgarsvæðinu og á hún því að vera þar. Í anda vandaðrar stjórnsýslu þarf nefnd um endurskoðun stjórnsýslu ríkisins á sviði félagsþjónustu og barnaverndar að ljúka störfum. Við mótun byggðastefnu er kominn tími til að tekið verði tillit til höfuðborgarinnar sem mikilvægs útvarðar byggðar á Íslandi. Stefnumótun í byggðamálum þarf að taka mið af breyttum aðstæðum og þörfum íbúa landsins og viðurkenna mikilvægi höfuðborgarinnar.“

Tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:

„Framsókn og flugvallarvinir samþykkja ekki ályktunartillögu borgarráðs, sérstaklega sem snýr að flutningi Fiskistofu, og telja það óeðlilegt út frá stærð og yfirburða styrks Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins með tilliti til atvinnumöguleika, fólksfjölgunar, í menningar-, menntunarlegu og þjónustulegu tilliti, að Reykjavíkurborg sé að álykta um byggðarstefnu ákveðna af ríkisvaldinu. Ber það keim af því að vilja gína yfir öllu stóru og smáu. Er það ekki hlutverk Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar að álykta um byggðastefnu ríkisins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert