SOS neyðaraðstoð vegna ebólu

Mörg börn hafa misst foreldra sína úr ebólu.
Mörg börn hafa misst foreldra sína úr ebólu. AFP

SOS Barnaþorpin hafa komið á fót neyðaraðstoð vegna ebólu í Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne og hafa SOS Barnaþorpin á Íslandi nú þegar gefið 2 milljónir til neyðaraðstoðarinnar. Megin áhersla samtakanna er að aðstoða munaðarlaus og yfirgefin börn ásamt þeim börnum sem eru í hættu á að verða það.

Samkvæmt BBC hafa að minnsta kosti 3.700 börn misst báða foreldra sína úr ebólu. Oftar en ekki er þessum börnum hafnað af stórfjölskyldu sinni vegna ótta við ebólusmit, segir í fréttatilkynningu frá SOS Barnaþorpum.

Ástandið varð til þess að SOS Barnaþorpin ákváðu að auka við aðstoð sína á svæðinu en samtökin hafa starfað í Gíneu síðan árið 1989, Líberíu síðan árið 1981 og Síerra Leóne síðan árið 1974.

Nú þegar hafa SOS Barnaþorpin útvegað matarbirgðir og önnur hjálpargögn vegna ebólufaraldursins. Þá hafa samtökin veitt 163 munaðarlausum eða yfirgefnum börnum aðstoð. Samtökin eru nú í viðræðum við yfirvöld landanna þriggja um næstu skref, þ.e. að koma þessum börnum í viðeigandi úrræði.

Þá eru SOS heilsugæslustöðvar starfandi í löndunum þremur. Allar sinna þær fólki sem er smitað af ebólu. SOS heilsugæslan í Monróvíu er til að mynda eina heilsugæslan á svæðinu sem opin er allan sólarhringinn.

 „Ebólan heldur áfram að herja á Vestur-Afríku,“ segir Richard Pichler  alþjóðaframkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna og bætir við: „Munaðarlausum börnum fjölgar stöðugt. Faraldurinn hefur gríðarlega slæm efnahagsleg, félagsleg og sálfræðileg áhrif og við munum halda áfram að finna fyrir þeim áhrifum næstu árin. Við verðum að búa okkur undir að enn fleiri börn verði munaðarlaus og ákveða hvernig við ætlum að mæta þeirri neyð.“

Fram til þessa hefur ebóla einkum greinst í Gíneu, Síerra Leóne og Líberíu en einnig í öðrum löndum.  Til þessa hafa tæplega 6 þúsund einstaklingar greinst með ebólu og um helmingur þeirra látist. Ekkert barn sem býr í SOS Barnaþorpi hefur smitast af ebólu. Hins vegar lést SOS móðir í Líberíu úr ebólu, ásamt einum hjúkrunarfræðingi á SOS heilsugæslustöð og einum SOS kennara, einnig staðsett í Líberíu. Miklar varúðarráðstafanir eru í þorpunum og allt gert til að hindra smit. Þá eru nokkrir SOS skólar og leikskólar í löndunum lokaðir vegna ástandsins.

102 Íslendingar eru að styrkja börn í níu SOS Barnaþorpum í löndunum þremur. Þar af eru 31 að styrkja barn í Gíneu, 46 í Síerra Leóne og 25 í Líberíu.

Hægt er að leggja neyðaraðstoðinni lið með því að hringja í númerið 907-1001 (1.000 krónur) eða 907-1002 (2.000 krónur). Einnig er hægt að leggja inn á reikning 334-26-52075, kt. 500289-2529 með tilvísuninni „ebóla“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert