6.141 tonns byggðakvóta úthlutað til 31 sveitarfélags

mbl.is/ÞÖK

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur úthlutað 6.141 þorskígildistonns byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015, samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum og samkvæmt reglugerð ráðuneytisins nr. 651 frá 4. júlí 2014.

Alls er byggðakvóta úthlutað til 31 sveitarfélags og í þeim fengu 48 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggist á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2004/2005 til fiskveiðiársins 2013/2014.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá átta byggðarlög þá úthlutun. 

Listi yfir úthlutunina

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert