24 milljónir í málskostnað

Sigurjón Árnason.
Sigurjón Árnason. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Málsvörn Sigurjóns Árnasonar og Elínar Sigfúsdóttur kostar eins og gefur að skilja töluvert.

Í dómsorðum dómsins, þar sem kveðinn eru upp sýknudómur yfir þeim, segir meðal annars:

„Allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði þar með talin 18.119.062 króna málsvarnarlaun Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns, verjanda ákærða Sigurjóns Þorvaldar, og 5.982.585 króna málsvarnarlaun Helgu Melkorku Óttarsdóttur hæstaréttarlögmanns, verjanda ákærðu Sigríðar Elínar.“

Kostnaður ríkissjóðs af málsvörn Sigurjóns og Elínar nemur því 24.191.647 krónum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert