Atlantsolía lækkar bensínverð

Atlantsolía lækkaði í dag bensínverð á öllum bensínstöðvum sínum. Verð á bensíni á bensínstöðvum Atlantsolíu er nú 231 króna og 70 aurar. Samkvæmt upplýsingum frá Atlantsolíu stafar þessi lækkun aðallega af lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu. 

Bensínverð hjá Atlantsolíu hefur lækkað um nærri 20 krónur frá því það var hæst um miðjan júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert