Bresku tundurdufli eytt

Úr myndbandi Gæslunnar.
Úr myndbandi Gæslunnar. mynd/Landhelgisgæslan

Landhelgisgæslunni barst nýverið tilkynning um torkennilegan hlut sem kom upp með veiðarfærum um borð í Jón á Hofi sem var á veiðum í Jökuldýpi vestur af landinu. 

Upplýsingunum var komið til vakthafandi sprengjusérfræðings sem hafði sambandi við skipstjóra og var staðfest að um breskt tundurdufl með 225 kg sprengjuhleðslu var að ræða, að því er segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Fram kemur, að skipstjóra hafi verið ráðlagt að halda að innsiglingunni við Sandgerði og flutti Hannes Hafstein, björgunarskip Landsbjargar í Sandgerði, sprengjusérfræðinga ásamt kafara frá Landhelgisgæslunni um borð og var duflið gert öruggt til flutnings.

Eftir að lyftibelgjum hafði verið komið fyrir á duflinu var því slakað í sjóinn og síðan dregið á öruggan stað til eyðingar með aðstoð slöngubáts frá köfunarþjónustu Sigurðar frá Sandgerði. Kafari Landhelgisgæslunnar kom svo fyrir sprengjuhleðslu við duflið þar sem því var eytt.

Meðfylgjandi myndskeið sýnir þegar að sprengjuhleðslunni úr duflinu var eytt. 

Sprengjusérfræðingar eyddu tundurdufli sem kom í veiðarfæri from Icelandic Coast Guard/LHG on Vimeo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert