Hálkublettir og éljagangur

Vetrarlegt um að litast. Myndin er frá síðasta vetri.
Vetrarlegt um að litast. Myndin er frá síðasta vetri. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum og eins víða á Suðurlandi, jafnvel krap eða snjóþekja í uppsveitum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Hálkublettir eru á Mýrum og Vatnaleið en hálka á Fróðárheiði, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Eins eru sumstaðar hálkublettir í Dölum. Það éljar á Vestfjörðum og sumstaðar er skafrenningur. Varað er við flughálku á Hálfdáni. Hrafnseyrarheiði er þungfær og þæfingsfærð er á Dynjandisheiði. Annars er snjóþekja, krap eða nokkur hálka allvíða á Vestfjörðum og Ströndum.

Hálka eða hálkublettir eru á köflum á Norðurlandi vestra. Hálkublettir eru í Héðinsfirði, í Ólafsfjarðarmúla, á Tjörnesi á Hólasandi og í Mývatnssveit en hálka og éljagangur á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Það snjóar á Austurlandi og víða er snjóþekja eða hálka, einkum á fjallvegum. Þæfingsfærð er á Breiðdalsheiði en Öxi er ófær.

Nánar á veðurvef mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert