Ferðamenn halda kyrru fyrir í Norrænu

Norræna á Seyðisfirði.
Norræna á Seyðisfirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Um 400 erlendir ferðamenn sem komu til Seyðisfjarðar með Norrænu í morgun halda nú kyrru fyrir í skipinu vegna veðurs.

Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum hefur fólkið það fínt í skipinu en ekki hafi verið hægt að fara í skipulagðar ferðir með rútum eins og stóð til í dag. Slæm færð er á Seyðisfirði og var því rútunum ráðlagt að halda kyrru fyrir í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert