Mengun berst til suðausturs

Mengunin í dag
Mengunin í dag Af vef Veðurstofu Íslands

Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni berst til suðausturs í dag en það er norðvestanhvassviðri eða -stormur. Mengunarsvæðið nær frá Jökulsárlóni í suðri og norður á Stöðvarfjörð.

Á morgun (miðvikudag) snýst í fremur hæga suðaustlæga og austlæga átt. Gosmengunar gæti orðið vart á öllu norðanverðu landinu á svæðinu frá Ísafjarðardjúpi í vestri og austur á Reyðarfjörð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert