Nokkur slys vegna hálku

mbl.is/Hjörtur

Nokkur slys urðu í dag vegna hálku á höfuðborgarsvæðinu. Voru farnir nokkrir sjúkraflutningar vegna beinbrota sem rekja má til hálku og snjós á höfuðborgarsvæðinu.

Að sögn varðstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er það þó eðlilegt á degi eins og þessum.

Varað hefur verið við glerhálku í kvöld og er fólk því hvatt til þess að fara varlega á öllum ferðalögum.

Viðvörun: Glerhálka í kvöld

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert