Stórhríð á Siglufjarðarvegi

Skapti Hallgrímsson

Það eru hálkublettir á Sandskeiði en hálka á Hellisheiði og eins víða á Suðurlandi, jafnvel krap eða snjóþekja í uppsveitum. Krapi er á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi og víðar á Reykjanesi.

Hálka, snjóþekja og éljagangur er víðast hvar á Vesturlandi og Vestfjörðum. Hrafnseyrarheiði er ófær og þungfært er á Dynjandisheiði.

Hálka, hálkublettir og skafrenningur er víða á Norðurlandi vestra. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði en þungfært og stórhríð á Siglufjarðarvegi. Þæfingsfærð og sjókoma er á milli Ólafsfjarðar og Akureyrar, eins er þæfingsfærð og stórhríð á Víkurskarði. Hálka, snjóþekja og óveður er víðast hvar á norðausturströndinni. Ófært og óveður er á hálsum og Hófaskarði. Snjóþekja og skafrenningur er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og skafrenningur. Þungfært og skafrenningur er á Breiðdalsheiði en Öxi er ófær.

Greiðfært er á Suðausturlandi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert