„Fyndin, kenjótt og kærleiksrík“

Peggy Oliver Helgason (önnur frá hægri) með viðurkenninguna. Sigurður Helgason, …
Peggy Oliver Helgason (önnur frá hægri) með viðurkenninguna. Sigurður Helgason, eiginmaður Peggy, stendur við hlið hennar. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, (önnur frá vinstri) var einnig viðstödd afhendinguna. Við hlið hennar stendur Erna Reyn­is­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla. Lengst til hægri er Kolbrún Baldursdóttir, formaður Barnaheilla.

Peggy Oliver Helgason iðjuþjálfi hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2014 fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Viðurkenningin er veitt fyrir stuðning hennar við langveik börn á Íslandi.

Peggy hefur í rúma tvo áratugi heimsótt börn á Barnaspítala Hringsins í trúðsgervi og glatt þau með leik og lestri. „Hún gefur hverju og einu barni góðan tíma, er fyndin, kenjótt og kærleiksrík. Hún fær einnig annað starfsfólk spítalans til að taka þátt í leiknum. Þetta ómetanlega framlag hefur glatt mörg veik börn og gert þeim spítalavistina bærilegri,“ segir í tilkynningu.

Fram kemur að Peggy og eiginmaður hennar, Sigurður Helgason, hafi árið 2003 stofnað ferðasjóð Vildarbarna Icelandair, en hugmyndina að sjóðnum á Peggy. Sjóðurinn hefur veitt fjölda langveikra barna og fjölskyldna þeirra ferðastyrk.

Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Í ár er viðurkenningin veitt á 25 ára afmæli samtakanna, 24. október, en það er einnig dagur Sameinuðu þjóðanna. Vanalega er viðurkenningin veitt 20. nóvember, á afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Sáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert