Laun kvenna 92% af launum karla

Gerð var könnun meðal fólks sem lauk meistar- og doktorsnámi …
Gerð var könnun meðal fólks sem lauk meistar- og doktorsnámi við Háskóla Íslands rúmu ári eftir útskrift nemendanna úr Háskóla Íslands. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Óleiðréttur kynbundinn launamunur nemenda sem útskrifaðir eru framhaldsnámi við Háskóla Íslands er 11,9% og hallar þar á konur. Þegar tillit er tekið til aldurs, starfs, deildar við HÍ, yfirvinnu og starfsgeira er munurinn 8,3%.

Þá telja konur frekar en karlar að laun þeirra að loknu meistara- og doktorsnámi séu lægri en væntingar stóðu til.

Þetta kom fram í erindi Andreu G. Dofradóttur, verkefnisstjóra við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, á málþingi á vegum Jafnréttisstofu í morgun en hún fjallaði um kynbundinn launamun háskólamenntaðra eftir útskrift. 

Laun kvenna 80% af launum karla

Óleiðréttur kynbundinn launamunur, þ.e. munur á tekjum vegna atvinnu karla og kvenna að teknu tilliti til vinnutíma, á Íslandi var 19,9% árið 2013.

Þetta þýðir að laun kvenna á Íslandi voru að jafnaði 80% af launum karlmanna árið 2013.

Þarna er ekki tekið tillit til annarra þátta sem geta haft áhrif. Þegar búið er að leiðrétta launamuninn stendur eftir 8,2% launamunur sem skýrist ekki af eðlilegum ástæðum.

Karlmenn með 2.903 kr., konur með 2.556 kr.

Gerð var könnun meðal fólks sem lauk meistara- og doktorsnámi við Háskóla Íslands rúmu ári eftir útskrift nemendanna úr Háskóla Íslands.

Könnunin leiddi í ljós að óleiðrétt mánaðarlaun ári eftir útskrift voru að meðaltali 576.340 krónur hjá karlmönnum og 484.069 krónur hjá konum. Þetta er um 16% óleiðréttur launamunur.

Þegar launamunurinn hafði verið leiðréttur miðað við vinnutíma var hann um 12%.

Þegar munurinn hafði aftur verið leiðréttur, þ.e. með tilliti til ýmissa eiginleika fólksins, er hann um 8,3%. Þar er miðað við að karlmennirnir séu með 2.903 krónur á tímann og konur 2.556 kr. á tímann og þar eru 240 krónur sem eru óútskýrðar.

Konur hafi ekki minni væntingar til launa

Heldur fleiri konur en karlar voru á þessari skoðun að laun þeirra, ári eftir útskrift, væru mun eða heldur lægri en þær væntu.

Andrea sagðist líta svo á að miðað við þessa niðurstöðu hefði verið „slegið á þá mýtu að konur hefðu minni væntingar til launa en karlar“.

Frétt mbl.is: Fleiri gæðastundir með feðrunum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert