Miðakaup ríkisins ekki enn boðin út

Icelandair
Icelandair

Félag atvinnurekenda hefur skrifað Ríkiskaupum bréf og óskað upplýsinga um stöðu áforma um að bjóða út farmiðakaup ríkisins í millilandaflugi á nýjan leik. Þetta kemur fram á vef Félags atvinnurekenda.

„Forsaga málsins er sú að árið 2012 sögðu Ríkiskaup upp rammasamningi við Icelandair og Iceland Express um flugsæti til og frá Íslandi. Kærunefnd útboðsmála hafði þá ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á síðarnefnda flugfélaginu með gerð samninga ríkisins við Icelandair um utanlandsferðir ríkisstarfsmanna.

Um leið og Ríkiskaup sögðu upp rammasamningnum tilkynnti stofnunin að hún hygðist höfða mál fyrir dómstólum til ógildingar úrskurði kærunefndarinnar. Það mál var aldrei höfðað og stendur úrskurður nefndarinnar því óhaggaður.

Jafnframt tilkynntu Ríkiskaup að stofnunin hygðist bjóða út farmiðakaup ríkisins á nýjan leik. Ekkert hefur frést af því útboði. Flest bendir til að ríkið kaupi langstærstan hluta flugmiða vegna utanlandsferða ríkisins af Icelandair, án útboðs eða samnings um afslætti. Með því er bæði farið illa með skattfé og keppinautum í millilandaflugi mismunað,“ segir á vef FA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert