Ók á 155 km hraða á Reykjanesbraut

Á Reykjanesbraut.
Á Reykjanesbraut. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Fimm ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 155 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þá óku þrír ökumenn án öryggisbelta og tveir þeirra voru ekki með ökuskírteini sín meðferðis.

Þá stöðvaði lögreglan í nótt för ökumanns vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Sýnatökur staðfestu neyslu hans á kannabis og amfetamíni. Að auki var bifreiðin sem hann ók ótryggð og voru skráningarnúmerin fjarlægð af henni.

Annar ökumaður sem lögregla stöðvaði hafði neytt kannabisefna og var á ótryggðri bifreið.

Þriðji ökumaðurinn ók bifreið sem ljóslaus var að aftan. Lögregla hafði afskipti af honum og fundust fíkniefni á mælaborði bifreiðarinnar og á gólfi hennar. Þrír farþegar voru í bifreiðinni og stæk kannabislykt barst úr henni. Voru þeir handteknir, ásamt ökumanni, sem hafði neytt kannabis og amfetamíns, að því er sýnatökur staðfestu.

Loks var einn ökumaður handtekinn vegna ölvunaraksturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert