Fleiri fái að kjósa biskup

Agnes M. Sugurðardóttir biskup Íslands.
Agnes M. Sugurðardóttir biskup Íslands. mbl.is/Golli

Lögð hefur verið fram tillaga á kirkjuþingi um að fjölga þeim sem hafa rétt til að kjósa biskup og vígslubiskupa.

Í dag er kosningaréttur leikmanna einskorðaður við formenn sóknarnefndar. Þetta fyrirkomulag hefur verið gagnrýnt. Til að koma á móts við þessa gagnrýni er lagt til að fjöldi kjörmanna verði áfram tengdur sóknum en fjöldi sóknarbarna verði látinn ráða fjölda kjörmanna. Lagt er til að sóknarnefndir velji kjörmenn. Þá er gert ráð fyrir að allt starfsfólk biskupsstofu í föstu starfi fái kosningarétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert