Áhersla á jafnrétti í þróunarmarkmiðum

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ráðherrar þróunarmála á Norðurlöndunum funduðu í gær í Stokkhólmi í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem þar fer nú fram. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fór með fundarstjórn.

„Við ræddum ýmis mál sem eru ofarlega á baugi í málaflokknum og norræna samvinnu í tengslum við þau, svo sem vinnu við mótun nýrra þróunarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, fjármögnun þróunarsamvinnu og viðskiptamiðaða þróunarsamvinnu. Greindi ég frá að í þeim samningaviðræðum sem framundan eru um ný þróunarmarkmið muni Ísland áfram leggja áherslu á landgræðslu, málefni hafsins, endurnýjanlega orku og jafnrétti kynjanna. Auk þess greindi ég frá þingsályktun um framfarir í lækningu sjúkdóma og skaða á taugakerfinu,“ er haft eftir Gunnari Braga í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Ráðherrarnir lögðu áherslu á mikilvægi þess að í nýjum þróunarmarkmiðum verði skýrt kveðið á um jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna og að Norðurlöndin héldu áfram að vinna að þessu í sameiningu.

Þá ræddu þeir einnig viðbrögð Norðurlandanna við ebólufaraldrinum og lögðu áherslu á að byggja þurfi upp heilsugæslu í fátækustu ríkjum heims, svo þau séu í stakk búin til að takast á við neyð sem þessa.

Faraldurinn veldur miklu álagi á heilbrigðiskerfin í viðkomandi löndum, sem fyrir eru veikbyggð og hafa vart bolmagn til að sinna grunnþjónustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert