Beið í 2 ár en aðgerðin féll niður

Dæmi er um að sjúklingur sem missir af aðgerð í …
Dæmi er um að sjúklingur sem missir af aðgerð í dag vegna verkfallsaðgerða lækna á lyflækningasviði Landspítalans hafi beðið í tvö ár eftir aðgerðinni mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Dæmi er um að sjúklingur sem missir af aðgerð í dag vegna verkfallsaðgerða lækna á lyflækningasviði Landspítalans hafi beðið í tvö ár eftir aðgerðinni. Allar skipulagðar valaðgerðir falla niður en meðal þeirra eru hjartaþræðingar og magaspeglanir.

Gert er ráð fyrir að álag muni aukast á spítalanum eftir því sem líður á daginn, þ.e. að erfitt verði að koma sjúklingum fyrir á deildum. Hingað til hefur starfssemi spítalans þó gengið vel, þrátt fyrir verkfallsaðgerðirnar. 

Ekki fara allir læknar í Læknafélagi Íslands í verkfall á sama tíma. Á miðnætti í nótt lauk meðal annars verkfallsaðgerðum lækna á barna-, kvenna- og rannsóknarsviði Landspítalans og þá mættu læknar á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðsins aftur til vinnu í morgun.

Læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á lyflækningasviði Landspítalans tóku aftur á móti við keflinu á miðnætti og leggja niður störf til miðnættis annað kvöld

Álagið mun aukast eftir því sem líður á daginn

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hefur dagurinn gengið vel en þó hefur vissulega þurft að fresta mörgum aðgerðum. Ekki eru allir jafn ánægðir, enda hafa einhverjir þurft að bíða í marga mánuði eða jafnvel í tvö ár eftir aðgerð.

Gert er ráð fyrir að álagið muni aukast þegar líður á daginn en þá gæti orðið erfiðara að koma sjúklingum sem koma inn á spítalann í gegnum bráðamóttökuna á stofur á spítalanum.

Ekki er hægt að útskrifa alla sjúklinga þegar í stað og dvelja til að mynda um sextíu sjúklingar á spítalanum sem þurfa að komast á hjúkrunarheimili eða fá aukna aðstoða heima við svo hægt sé að útskrifa þá. Flestir þessara sjúklinga dvelja á Vífilsstöðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert