Aflaverðmæti dróst saman um 13,1%

Aflaverðmæti íslenskra skipa í júlí var 13,1% minna en í júlí 2013. Aflaverðmæti dróst saman í öllum aflaflokkum nema þorski og skelfiski. Samdráttur var mestur í verðmæti uppsjávarafla var um 16,2% og í flatfiskafla um 54,1%.

Aflaverðmæti íslenskra skipa á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2013 til júlí 2014 dróst saman um 11,2% miðað við sama tímabil ári fyrr. Samdráttur var í flestum aflategundum en þó jókst aflaverðmæti makríls um 97,8% á tímabilinu auk þess sem aukning varð í aflaverðmæti þorsks, ýsu og humars, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert